Skip to main content
Fjórir einstaklingar vinna saman að verkefni

Play2Work þróar leikjavæddar lausnir fyrir tungumálanám og atvinnulíf

Tungumálafærni styrkist með æfingu. Play2Work tengir tungumálanám við raunverulegar aðstæður á vinnustað, í atvinnuleit og í daglegum samskiptum.

Play2Work er norrænt þróunarverkefni undir stjórn Spring House og nýtur styrks frá Nordplus Adult-áætluninni. Markmið verkefnisins er að styðja fullorðið fólk af erlendum uppruna við að efla tungumálafærni sína og styrkja þátttökumöguleika á vinnumarkaði.

Þróaðar verða leikjavæddar lausnir til tungumálanáms ásamt því að þær verða prófaðar og niðurstöðurnar metnar. Leikirnir byggja á raunverulegum aðstæðum á vinnustöðum. Markmiðið er að gera tungumálanám hagnýtt, áhugavert og sveigjanlegt og skapa um leið fleiri tækifæri til að æfa tungumálið utan kennslustofnnar. um leið og skapað er meira svigrúm til æfinga utan hefðbundins kennslurýmis.

Verkefnið Play2Work leiðir saman samstarfsaðila frá Finnlandi, Íslandi, Danmörku og Noregi. Með norrænu samstarfi nýtum við fjölbreytta sérþekkingu, prófum nýjar aðferðir og miðlum reynslu og góðum starfsháttum sem geta stutt við tungumálanám og aukna þátttöku í atvinnulífinu.

Hver eru markmið Play2Work?

1. Öflugri tungumálafærni

Leikjavæddar aðferðir bjóða upp á nýjar og áhugaverðar leiðir til að þjálfa tungumálafærni og samskiptahæfni sem nýtist í atvinnulífinu.

2. Aukið sjálfstraust á atvinnumarkaði

Við færum námið nær raunverulegum aðstæðum á vinnumarkaði og aukum þá færni sem þarf bæði við atvinnuleit og í starfi.

3. Hvatning og sjálfstraust til þátttöku

Leikjavætt nám hvetur þátttakendur til að prófa sig áfram, taka virkan þátt og nota tungumálið. Um leið getur það styrkt sjálfstraust þeirra og aukið áhuga og hvata til náms.

4. Hagnýt verkfæri fyrir kennara og fræðsluaðila

Áhersla er lögð á að þróa hagnýt verkfæri og leiðir sem nýtast kennurum og fræðsluaðilum til að samþætta leikjavætt nám við daglega tungumálakennslu.

Frá þörfum dagslegs lífs til hagnýtra lausna

Hagnýt nám og verkfæri fyrir raunverulegar aðstæður á vinnustað

Með því að sameina reynslu og sjónarmið nemenda, kennara og atvinnulífsins skapast lausnir sem virka í daglegu starfi.

Í Play2Work kortleggjum við þarfir námsmanna, kennara og atvinnurekenda og nýtum þá innsýn til að þróa leikjavæddar lausnir og tungumálanámsleiki sem tengjast raunverulegum aðstæðum á vinnumarkaði. Lausnirnar eru síðan prófaðar í öllum fjórum samstarfslöndunum.

Kennarar taka þátt í vinnustofum þar sem leikjavæddar aðferðir eru innleiddar í daglega tungumálakennslu. Sú reynsla og þekking sem verður til í prufukeyrslunum er síðan nýtt til að þróa og styrkja lausnirnar.

Aðgengilegar lausnir fyrir kennslu og tungumálanám

Ein af megináherslum Play2Work er að þróa hagnýtar lausnir sem styðja við tungumálanám fullorðinna innflytjenda og nýtast áfram eftir að verkefninu lýkur.

Þróaðar verða fjölbreyttar lausnir, svo sem handbók, verkfærakista, tungumálanámsleikir og verkferlar sem styðja við fræðslu og tungumálanám fullorðinna.

Hér á síðunni og á LinkedIn-síðu Play2Work munum við deila innsýn úr verkefninu, segja frá framvindu þess og kynna þær lausnir og niðurstöður sem verða til.

Play2Work er norrænt samstarfsverkefni um fullorðinsfræðslu og tungumálanám

Play2Work er samstarfsverkefni fjögurra menntastofnana frá Finnlandi, Íslandi, Danmörku og Noregi sem hafa víðtæka reynslu af fullorðinsfræðslu og tungumálakennslu fyrir innflytjendur.

Spring House Oy, Finnlandi stýrir verkefninu.

Samstarfsaðilar: Mímir-símenntun, Íslandi; Vestegnens Sprog- og Kompetencecenter (VSK), Danmörku; og Voksenopplæringen for Øvre Romerike (VOØR), Noregi.

Með fjölbreyttri reynslu af fullorðinsfræðslu, tungumálakennslu innflytjenda og starfstengdu námi leggjum við sterkan grunn að verkefninu. Samstarfið gerir okkur kleift að læra hvert af öðru og yfirfæra árangursríkar lausnir milli landa.

Lengd verkefnis: 1. júní 2026 - 31. maí 2028

Styrktaraðili: Nordplus Adult

partner logos

Hvernig getur leikjavætt nám stutt við tungumálanám og þátttöku á vinnumarkaði?

Tungumál snúast um meira en orðaforða og málfræði. Þau gefa fólki sjálfstraust til að eiga samskipti, takast á við verkefni í starfi og verða virkur þátttakandi í nýju samfélagi.

Tungumálakennsla skapar forsendur fyrir frekara námi og þátttöku, en færnin þróast ekki eingöngu í skólastofunni. Á vinnumarkaði þarf að geta notað tungumálið í raunverulegum aðstæðum, átt samskipti af öryggi, spurt spurninga, svarað og gert sig skiljanlegan.

Í Play2Work skoðum við hvernig leikjavætt nám getur stutt við tungumálakennslu og skapað ný tækifæri til að æfa tungumálið í aðstæðum sem endurspegla raunverulegt vinnuumhverfi. Jafnframt eflum við norrænt samstarf og deilum lausnum sem nýtast bæði námsmönnum og kennurum.


Fylgdu Play2Work á LinkedIn

Á LinkedIn-síðu Play2Work getur þú fylgst með framvindu verkefnisins, fréttum frá samstarfsaðilum og þeim prófunum og niðurstöðum sem verða til á verkefnistímanum.

Frekari upplýsingar um Play2Work verkefnið

Kristel Kivisik

Kristel Kivisik

Director of Immigrant Services

040 518 2585

[email protected]

Spring House